Skorar á stjórnvöld ađ hćkka atvinnuleysisbćturnar

  Ályktun frá Framsýn- stéttarfélagi Ţingeyinga Framsýn- stéttarfélag skorar á stjórnvöld ađ hćkka atvinnuleysisbćtur hiđ fyrsta til ţess ađ koma til móts

Skorar á stjórnvöld ađ hćkka atvinnuleysisbćturnar
Ađsent efni - - Lestrar 263

  Ályktun frá Framsýn- stéttarfélagi Þingeyinga

Framsýn- stéttarfélag skorar á stjórnvöld að hækka atvinnuleysisbætur hið fyrsta til þess að koma til móts við þá einstaklinga sem þegar hafa misst vinnuna og þann mikla fjölda sem býr við ótryggt atvinnuöryggi og gætu því staðið uppi atvinnulausir á næstu vikum og mánuðum. 

Í þeim miklu erfiðleikum sem herja nú á efnahagslíf þjóðarinnar er ljóst að fjölmargir munu til viðbótar missa vinnuna vegna samdráttar og gjaldþrota.  Því er mikilvægt að atvinnuleysistryggingasjóði verði tryggðir fjármunir til að hækka grunnatvinnuleysisbætur og  að tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta verði aukið til muna.  Með slíkum aðgerðum má draga úr því áfalli sem einstaklingar ganga í gegnum við atvinnumissi. 

Jafnframt hvetur félagið til þess að þjónusta við atvinnuleitendur og atvinnurekendur verði efld með auknum vinnumarkaðsaðgerðum.

Þannig samþykkt á fundi stjórnar 29. október 2008.

 

f.h. Framsýnar- stéttarfélags

Aðalsteinn Á. Baldursson

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744