Sjómenn til hamingju með daginn

Sjómannadagurinn er í dag og óskar 640.is sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.

Sjómenn til hamingju með daginn
Almennt - - Lestrar 160

Fanney ÞH 130 í skemmtisiglingu árið 1977.
Fanney ÞH 130 í skemmtisiglingu árið 1977.

Sjómannadagurinn er í dag og óskar 640.is sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. 

Það fer lítið fyrir hátíðarhöldum í tilefni dagsins á Húsavík en á Raufarhöfn halda menn veglega upp á hann.

Á Húsavík verður helgistund í kirkjugarðinum kl. 11 hvað lagður verður blómsveigur við minnismerkið um týnda menn. Þá verður helgistund í Hvammi kl. 14.

Einnig verður Sjómannadagskaffi  í Hlyn á vegum Félags eldri borgara á Húsavík & nágrenni.

Ljósmynd - Aðsend

Fanney ÞH 130 í skemmtisiglingu á Sjómannadeginum árið 1977.

Ljósmynd Pétur Jónasson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744