08. jún
			Sigrún Marta valin í æfingahóp undir 16 ára landsliðs ÍslandsÍþróttir -  - Lestrar 566
			
		Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 ára landsliðs kvenna, hefur valið æfingahóp sem kemur saman á Selfossi dagana 21.-24.júní nk.
Æfingarnar eru liður í undir-búningi fyrir NM sem fram fer í Danmörku í 4.-13.júlí 2021.
Völsungur á einn glæsilegan fulltrúa í þessum æfingahópi en það er varnarjaxlinn sterki Sigrún Marta Jónsdóttir.
Sigrún Marta er í 3.flokki og hefur einnig vakið verðskuldaða athygli með meistaraflokki Völsungs.
































									
































 640.is á Facebook