Samningaviðræður hafnar milli PCC og Framsýnar/Þingiðnar

Viðræður eru hafnar milli stéttarfélaganna Framsýnar og Þingiðnar annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar vegna PCC á Bakka um endurnýjun á

Viðræður eru hafnar milli stéttarfélaganna Framsýnar og Þingiðnar annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar vegna PCC á Bakka um endurnýjun á sérkjarasamningi aðila sem rann út í lok nóvember. 

Fyrsti samningafundurinn var haldinn í gærmorgun og verður viðræðum aðila fram haldið á næstu dögum. Fullur vilji er til þess að klára viðræðurnar fyrir áramótin. Um 150 manns starfa hjá PCC á Bakka.

Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í fundarsal stéttarfélaganna í gær má sjá samninganefndir starfsmanna og PCC.

Fram kemur á heimasíðu Framsýnar að fundurinn hafi farið vel fram enda fullur vilji til þess að ganga frá ásættanlegum kjarasamningi milli aðila sem fyrst.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744