Rýming stendur enn yfir í Útkinn

Bærinn Nípá í Útkinn hefur verið rýmdur auk þeirra fimm bæja sem rýmdir voru í nótt.

Rýming stendur enn yfir í Útkinn
Almennt - - Lestrar 145

Svona var umhorfs við Björg í dag. Lj. LHG
Svona var umhorfs við Björg í dag. Lj. LHG
Bærinn Nípá í Útkinn hefur verið rýmdur auk þeirra fimm bæja sem rýmdir voru í nótt.
 
Í tilkynningu á face­booksíðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að óvenju mikil úrkoma hafi verið á svæðinu og mikið vatn er enn í fjallshlíðum.
 
"Fjölmargar aurskriður hafa fallið á stóru svæði og er hættustig enn í gildi á svæðinu.
 
Þyrla landhelgisgæslunnar tók myndir af fjallshlíðum í dag og hefur ferjað íbúa á þeim bæjum sem voru innlyksa. Bændur hafa notið aðstoðar björgunarsveita til að komast til mjalta í dag.
 
Að loknum stöðufundi með Veðurstofu Íslands var ákveðið að rýming standi enn yfir en næsti stöðufundur verður haldinn um hádegi á morgun". Segir í tilkynningunni.
 
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744