08. mar
Rúnar Ísleifsson skákmeistari HuginsÍþróttir - - Lestrar 332
Rúnar Ísleifsson vann sigur á skákþingi Hugins á norðursvæði, en mótinu lauk í dag á Húsavík.
Rúnar vann Hermann Aðalsteinsson í lokaumferðinni og tryggði sér þar með sigurinn í mótinu með 5,5 vinninga af 7 mögulegum.
Rúnar er því skákmeistari Hugins á norðursvæði árið 2015 og í annað sinn frá upphafi. Jón Aðalsteinn Hermannsson vann sigur í flokki 16 ára og yngri.