Römpum upp Húsavík

Þessa dagana er unnið að því að Rampa upp Húsavík og af því tilefni var vígsluhátíð við Heimabakarí í dag.

Römpum upp Húsavík
Almennt - - Lestrar 403

Hildur Sigurgeirsdóttir klippti á borðann í dag.
Hildur Sigurgeirsdóttir klippti á borðann í dag.

Þessa dagana er unnið að því að Rampa upp Húsavík og af því tilefni var vígsluhátíð við Heima-bakarí í dag.

Þar flutti Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings stutt ávarp þar sem hún m.a þakkaði fyrir gott samstarf við RUÍ sem og fyrirtækjaeigendum á Húsavík fyrir góðar undirtektir og vilja til að bæta aðgengi hreyfihamlaðra að sínum stofnunum. 

Að því loknu klippti Hildur Sigurgeirsdóttir á borða og fyrsti rampurinn tekinn formlega í notkun á Húsavík. Og ekki bara á Húsavík því fram kom í máli sveitarstjóra að þetta ku vera fyrsti rampurinn í þessu verkefni sem tekinn er formlega í notkun á Norðurlandi.

Römpum upp Ísland (RUÍ) er ríflega tveggja ára gamalt verkefni,  en því  var formlega hleypt af stokkunum þann 11. mars 2021.

Tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi.

Það er Haraldur Þorleifsson, fyrrverandi stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, sem er hvatamaður verkefnisins og hefur lagt í það mikla fjármuni úr eigin vasa.

Einnig eru í stofnfé sjóðsins framlög einstaklinga, fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vilja leggja sitt af mörkum til  að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra um allt land.

Markmiðið fyrst var 1000 rampar um allt Ísland á 4 árum, núna er búið að hækka markmiðið í 1500 rampa á 4 árum og gengur verkefnið vonum framar enda málsstaðurinn góður.

Staðsetning rampa sem verið er að vinna að á Húsavík er eftirfarandi:

•             Garðarsbraut 5, v. Krambúðina - 

•             Garðarsbraut 15 fyrir framan Hárform - 

•             Garðarsbraut 15 Heimabakarí - 

•             Garðarsbraut 26 Fundarsalur Stéttarfélaganna - 

•             Suðurgarður 2, Ísfell – 

•             Laugarbrekka 26, Cape Hotel - 

Ljósmynd Hafþór-640.is

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings flutti stutt ávarp við athöfnina.

Ljósmynd Hafþór-640.is

Hildur Sigurgeirsdóttir klippti á borðann og fyrsti rampurinn þar með tekinn í notkun.

Ljósmynd Hafþór-640.is

Unnið var í dag við rampa að Garðarsbraut 5 en gert hlé þar á meðan borðaklippingin við Heimabakarí fór fram.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744