Opna Húsavíkurmótið í Boccia um helgina

Opna Húsavíkurmótið í Boccia 2013 verður haldið í Íþróttahöllinni á Húsavík sunnudaginn 17. febrúar og hefst kl. 13:00.

Opna Húsavíkurmótið í Boccia um helgina
Íþróttir - - Lestrar 347

Það er greinilega gaman á Opna húsvíska.
Það er greinilega gaman á Opna húsvíska.
Opna Húsavíkurmótið í Boccia 2013 verður haldið í Íþróttahöllinni á Húsavík sunnudaginn 17. febrúar og hefst kl. 13:00.
 
Hér er um liðakeppni að ræða þar sem keppt verður í 2ja manna liðum. 

Þetta er að venju laufléttur leikur fyrir alla. Og hvetjum við fyrirtæki, hópa og einstaklinga að mynda lið og taka þátt.  Mótið er fjáröflun fyrir hin fræknu Boccialið Völsungs. Lágmarks þátttökugjald er kr. 4000 á lið.

Skráning þarf að berast fyrir kl. 14:00  föstudaginn  15. febrúar n.k.  í síma 892 4133,   eða netfang:  egill@mannvit.is

Keppt verður um glæsilegan farandbikar frá Norðlenska. Fleiri vegleg verðlaun verða í boði.

Í mótslok mun Kiwanisklúbburinn Skjálfandi veita Húsvísku íþróttafólki viðurkenningar.  Og  lýst verður vali á “Íþróttamaður Húsavíkur” fyrir árið 2012. 

Fjölmennum í höllina sunnudaginn 17. febrúar n.k.!!

Boccia deild Í.F.V og Kiwanisklúbburinn Skjálfandi standa fyrir þessum viðburði.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744