Nýr vefur stéttarfélaganna í loftið

Heimasíða Stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum, framsyn.is, opnaði fyrst formlega árið 2001.

Nýr vefur stéttarfélaganna í loftið
Fréttatilkynning - - Lestrar 167

Heimasíða Stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum, framsyn.is, opnaði fyrst formlega árið 2001.

Frá þeim tíma hafa reglulega verið gerðar breytingar á síðunni.

Hvað það varðar má geta þess að undanfarið hefur verið unnið að því að gera gagngerar breytingar á vefnum sem opnaði eftir breytingar í dag. Samið var við hugbúnaðarfyrirtækið AP Media um að framkvæma breytingarnar í samráði við starfsmenn stéttarfélaganna. Samstarfið gekk afar vel og er afraksturinn eftir því.

Á sínum tíma var gerð vefsins í höndum Arngríms Arnarsonar sem sá alfarið um alla forritun, uppsetningu og grafíska hönnun hans í samstarfi við starfsmenn stéttarfélaganna

Uppfærsla á vefnum verður í höndum starfsmanna stéttarfélaganna og munu þeir sjá um að bæta við upplýsingum til félagsmanna, fréttum og tilkynningum inn á vefinn með reglulegu millibili. Þannig mun vefur stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum verða áfram öflugur upplýsingamiðill til mikilla hagsbóta fyrir félagsmenn og aðra þá sem áhuga hafa á málefnum félaganna.

Óhætt er að segja að góð heimasíða með helstu upplýsingum fyrir félagsmenn, auðveldi bæði félagsmönnum og starfsmönnum stéttarfélaganna lífið og spari þeim auk þess töluverða vinnu.

Þá er ánægjulegt til þess að vita að fjölmargir félagsmenn og gestir heimsækja síðuna daglega enda afar vinsæl. Allar ábendingar og athugasemdir varðandi vefinn eru vel þegnar og skulu þær sendar til Aðalsteins Árna netfangið kuti@framsyn.is sem jafnframt er ábyrgðarmaður vefsins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744