06. feb
Nýr umsjónarmaður félagsstarfs aldraðraAlmennt - - Lestrar 539
Félagsþjónusta Norðurþings hefur ráðið Eyrúnu Dögg Guðmundsdóttur í starf umsjónarmanns í félagsstarfi aldraðra og hóf hún störf nú í byrjun febrúar.
Eyrún útskrifaðist sem félagsliði árið 2008 og hefur mikla reynslu af því að starfa með eldri borgurum.
Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf.
Á heimasíðu Norðurþings er Eyrún Dögg boðin velkomin til starfa og henni óskað velfarnaðar í starfi.