Nýr dagur með Elvari Braga

Nýr hljómdiskur með lögum eftir húsvíkinginn Elvar Bragason kemur út á næstu dögum.

Nýr dagur með Elvari Braga
Almennt - - Lestrar 205

Nýr hljómdiskur með lögum eftir húsvíkinginn Elvar Bragason kemur út á næstu dögum.

Diskurinn heitir Nýr dagur og kemur út á vegum samtakanna Lífsýn forvarnir og fræðsla. Hann hefur að geyma 12 ný lög með textum eftir Elvar Bragason, Önnu Sofíu Gærdbo og Önnu Soffíu Halldórsdóttur.

Flytjendur á disknum ásamt höfundi eru nemendur Tónasmiðjan - Ungt fólk fyrir ungt fólk og landsþekktir gestir á borð við Kristján Gíslason , Pál Rósinkranz , Ölmu Rut K , Birgi Haraldsson, Hreim Örn Heimisson og fjölmörgum öðrum gestum.

Diskurinn er gefinn út til minningar um allt það góða fólk sem hefur tekið líf sitt og dáið langt fyrir aldur fram.

Allur ágóði af disknum rennur beint í starfsemi Lífsýnar sem vinnur markvisst að því að hjálpa þeim sem minna mega sín, börnum, ungmennum og fullorðnum einstaklingum sem standa illa félagslega, hafa orðið fyrir áföllum í lífinu og hafa orðið fyrir einelti. 

Nýr dagur er þriðji diskurinn með lögum Elvars en hinir tveir, Minningar og Kveðja, hlutu góðar viðtökur.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744