25. jan
Norðursigling styður áfram við knattspyrnunaAlmennt - - Lestrar 191
Í morgun skrifuðu Norðursigling og knattspyrnudeild Völsung undir áframhaldandi samstarf til þriggja ára.
Samstarfssamningurinn felur í sér að Norðursigling styður knattspyrndudeildina fjárhagslega með árlegum greiðslum.
Á móti verður fyrirtækið sýnilegt í formi auglýsinga á búningum bæði kvenna- og karlaliðs Völsungs sem og á Húsavíkurvelli.
Víðir Svansson fulltrúi knattspyrnudeildar og Guðbjartur Ellert Jónsson framkvæmdastjóri Norðursiglingar takast í hendur eftir að hafa gengið frá samningnum í morgun.