22. apr
Mynd dagsins - Treville við NorðurgarðinnAlmennt - - Lestrar 127
Mynd dagsins var tekin nú undir kveld og sýnir hollenska flutningaskipið Treville við Norðurgarðinn.
Varðskipið Freyja dró skipið til Húsavíkur í síðustu viku eftir að það varð vélarvana út af Melrakkasléttu og unnið er að viðgerð í skipinu.
Í fyrstu var talið að það tæki 2-3 daga að gera skipið það en samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag reyndist bilunin alvarlegri en talið var í upphafi.
Fram kemur í fréttinni að það taki sennilega þessa viku sem nú er nýhafin að gera við skipið.
Hollenska flutningaskipið Treville við Norðurgarðinn í dag.