Mynd dagsins - Naust

Mynd dagsins var tekin í dag og sýnir Naust, hús Björgunarsveitarinnar Garðars, Slysavarnardeildar kvenna og Rauða krossdeildarinnar á Húsavík.

Mynd dagsins - Naust
Mynd dagsins - - Lestrar 392

Naust í nóvemberblíðunni í dag.
Naust í nóvemberblíðunni í dag.

Mynd dagsins var tekin í dag og sýnir Naust, hús Björgunarsveitar-innar Garðars, Slysavarnardeildar kvenna og Rauða krossdeildarinnar á Húsavík. 

Þar hafa staðið yfir miklar fram-kvæmdir frá vordögum eins og myndin sýnir en um er að ræða viðbygginguna næst á myndinni.

Naust var vígt sem björgunarstöð og félagsaðstaða þessar fyrrnefndu aðila í febrúarmánuði 1997 en áður hýsti húsið starfsemi útgerðarfélagsins Vísis og gjarnan nefnt Vísishúsið.

Þess má geta að Fjölskylduráð Norðurþings samþykkti í vikunni að fela íþrótta- og tómstundafulltrúa að ganga frá leigusamning til þriggja ára við eigendur húsnæðisins sem mun hýsa starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Tún. 

Ljósmynd 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744