Mynd dagsins - Haldið í fyrsta róður eftir sumarstopp

Mynd dagsins var tekin í kvöld þegar línubáturinn Karólína ÞH 100 hélt í sinn fyrsta róður eftir sumarstopp.

Mynd dagsins - Haldið í fyrsta róður eftir sumarstopp
Mynd dagsins - - Lestrar 248

Karólína ÞH 100 heldur af stað í róður.
Karólína ÞH 100 heldur af stað í róður.

Mynd dagsins var tekin í kvöld þegar línubáturinn Karólína ÞH 100 hélt í sinn fyrsta róður eftir sumarstopp.

Það er Dodda ehf. sem gerir bátinn út og var stoppið m.a notað til að fara til Siglu-fjarðar í skverun. 

Báturinn er eftir hana eins og nýr á að líta en hann var sprautaður að utan sem innan auk þess sem farið var í vélina á honum.

Karólína er að verða 14 ára gömul og að sögn Hauks Eiðssonar skipstjóra og útgerðarmanns hafa þeir fiskað hátt í 9000 tonn á bátinn. Haukur og Örn Arngrímsson hafa verið á bátnum frá upphafi.

Í bakgrunni myndarinnar má sjá línubáta GPG Seafood, Halldór NS 302 og Háey II ÞH 275, sem hafa verið í skverun að undanförnu en fóru á flot í dag.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744