Mynd dagsins - Græn kærleikskeðja

Mynd dagsins var tekin við Borgarhólsskóla í morgun, á Alþjóðlegum baráttudegi gegn einelti.

Mynd dagsins - Græn kærleikskeðja
Mynd dagsins - - Lestrar 183

Græn kærleikskveðja á milli skóla.
Græn kærleikskveðja á milli skóla.

Mynd dagsins var tekin við Borgarhólsskóla í morgun, á Alþjóðlegum baráttudegi gegn einelti.

Í þjóðarsáttmála sem undirritaður var þann 8. nóvember 2011 segir: „Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er“.

Allir dagar eiga að vera gegn einelti en þessi dagur minnir okkur sérstaklega á hvílíkt böl um ræðir, sem ekki er eingöngu bundið skólum heldur samfélaginu öllu.

Undanfarin ár hefur Borgarhólsskóli unnið að ýmsum viðfangsefnum í tengslum við þennan dag.

"Í ár hittust vinabekkir skólans; fyrsti og sjötti, annar og sjöundi og þannig upp í fimmta og tíunda. Eftir samveruna fóru nemendur og starfsfólk út og mynduðu kærleikskeðju frá leikskólanum Grænuvöllum, gegnum skólann okkar og upp að Framhaldsskólanum á Húsavík. Nemendur og starfsfólk framhaldskólans tók sömuleiðis þátt í keðjunni. Grænt hjarta var látið ganga upp keðjuna en grænt er tákn þess sem aðstoðar, hjálpar og styður". Segir í frétt á vef skólans.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Græn kærleikskeðja var mynduð á milli skólanna í dag.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744