Mynd dagsins - Dagmar Aaen á leið í sleðann

Mynd dagsins var tekin við Naustagarð í morgun þegar þýski kútterinn Dagmar Aaen var á leið í sleðann hjá Húsavíkurslipp.

Mynd dagsins - Dagmar Aaen á leið í sleðann
Mynd dagsins - - Lestrar 223

Skonnortan Dagmar Aaen á leið í slipp.
Skonnortan Dagmar Aaen á leið í slipp.

Mynd dagsins var tekin við Naustagarð í morgun þegar þýska kútterinn Dagmar Aaen var á leið í sleðann hjá Húsavíkurslipp.

Kútterinn er í eigu þýska heimskautafarans og land-könnuðurins Arved Fuchs og er ekki með öllu ókunnur hér á Húsavík.

Hafði m.a vetursetu í Húsavíkurhöfn fyrir nokkrum árum. Þá kom hann á siglingahátíðina sem haldin var hér sumarið 2011.

Dagmar Aaen var byggð til fiskveiða árið 1931 í Esbjerg í Danmörku. Hún er sterkbyggð og vel fallin til siglinga í norðurhöfum. Arvid Fuchs keypti kútterinn fyrir þrjátíu árum eftir að hætt var að nota hann til fiskveiða. Hann gerði breytingar á honum svo hann henti til heimskautasiglinga og hefur síðan haldið í leiðangra víða um heimshöfin.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744