07. jún
			Mynd dagsins - Blómsveigur lagður að minnisvarða um látna sjómennMynd dagsins -  - Lestrar 596
			
		Mynd dagsins var tekin við Húsavíkurkirkju í dag og með henni óskar 640.is sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með Sjómannadaginn.
Að lokinni samverustund í kirkjunni var blómsveigur lagður að minnisvarða um látna sjómenn sem stendur á kirkjulóðinni.
Það gerðu sjómennirnir Sigdór Jósefsson og Örn Arngrímsson að viðstöddum kirkjugestum en með þeim á myndinni er Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


 































 
									 


 
 

 
 






























 640.is á Facebook
 640.is á Facebook