Mynd dagsins - Aðalsteinn Árni las upp úr bók Guðna Ágústssonar

Mynd dagsins var tekin í dag á kaffihúsinu H é r n a við Stóragarð.

Aðalsteinn Árni Baldursson.
Aðalsteinn Árni Baldursson.

Mynd dagsins var tekin í dag á kaffihúsinu H é r n a við Stóragarð. 

Myndin sýnir Aðalstein Árna Baldursson frístundabónda og formann Framsýnar en hann las nú síðdegis upp úr bók Guðna Ágústssonar, Á ferð og flugi, fyrir gesti kaffihússins.

Bókin kom nýlega út og hefur selst í þúsundun eintaka. Í bókinni fer Guðni með lesendum í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi, það er skemmtilega og forvitnilega viðmælendur. Guðni gerði sér að sjálfsögðu ferð í Grobbholt á Húsavík sem orðið er eitt þekktasta fjárbú á Íslandi.

Aðalsteinn Árni las þann kafla bókarinnar sem fjallaði um heimsóknina í Grobbholt auk fleiri frásagna, m.a frá heimsókn Guðna til Vestmannaeyja.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744