Meistaraflokkur kvenna samdi við níu leikmennÍþróttir - - Lestrar 510
Meistaraflokkur Völsungskvenna í knattspyrnu gerði á dögunum samninga við níu leikmenn sem koma til með að leika með liðinu í sumar.
Leikmennirnir sem skrifuðu undir samninga eru
Dagbjört Ingvarsdóttir f. 1996
Karólína Pálsdóttir f. 1997
Ragnheiður Ísabella Víðisdóttir f. 1999
Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir f. 1995
Árdís Rún Þráinsdóttir f. 2001
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir f. 2001
Bergdís Björk Jóhannsdóttir f. 2001
Guðrún María Guðnadóttir f. 2001
Krista Eik Harðardóttir f. 2001
Á heimasíðu Völsungs segir að í þessum hópi séu bæði ungar og efnilegar stelpur sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistarflokki ásamt nokkrum eldri reynsluboltum sem eiga marga leiki að baki í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur.
Eins og áður hefur komið fram mun meistaraflokkurinn spila í 2. deild í sumar og er markmiðið að komast upp í 1. deild. Til þess þarf öflugan og samheldinn hóp og með þessum undirskriftum er stígið stórt skref í að styrkja leikmannahópinn.
Stelpurnar ánægðar að lokinni undirskrif. Ljósmynd Völsungur.