Með álfum

Út er komin bókin Með álfum. Ævisaga flökkukonunnar Ingiríðar Eiríksdóttur frá Haga í Þingeyjarsýslu 1777-1857 eftir Yngva Leifsson sagnfræðing frá

Með álfum
Almennt - - Lestrar 289

Yngvi Leifsson.
Yngvi Leifsson.

Út er komin bókin Með álfum. Ævisaga flökkukonunnar Ingiríðar Eiríksdóttur frá Haga í Þingeyjarsýslu 1777-1857 eftir Yngva Leifsson sagnfræðing frá Húsavík. 

 

Útgefandi er Sögufélag. Hér er um sögulegt fræðirit að ræða, en þó með óbrotnum söguþræði þar sem fylgst er með ævi Ingiríðar frá vöggu til grafar. Þetta er frásögn af ferðalögum flökkukonu og örlögum hennar þegar árferði var óvenju hart

Hægt er að nefna Skaftárelda og Móðuharðindi í því samhengi, og kaldlyndi yfirvalda gagnvart flökkufólki í sögulegu hámarki þar sem ný lög gegn flakki og lausamennsku áttu að afmá allt slíkt úr íslensku samfélagi,“ segir Yngvi í samtali við Landpóstinn.

En hver er Ingiríður og hversvegna þessi áhugi á henni?

„Ingiríður var dæmigerður lausaleikskrói í æsku og var send bæ frá bæ, sífellt upp á náð og miskun annara komin, þar sem móðir hennar hafði ekki ráð á að hafa hana hjá sér. Það er því ekki erfitt að ímynda sér hvaðan rótleysið kom. Það má segja að áhugi minn hafi komið þegar ég sá hversu skýra mynd af sögu lands og þjóðar það getur gefið að rannsaka eina manneskju eins og Ingiríði. Áherslur yfirvalda og hvers konar þjóðfélagsmynd þau vildu móta, eða halda í horfinu, kemur skýrt fram. Einnig virkni réttarkerfisins, svo sem hvernig líkamlegar refsingar voru lagðar á fólk, hvernig réttarhöld fóru fram, hvernig var að dúsa í tukthúsinu á Arnahóli eða sitja í gæsluvarðhaldi hjá hreppstjórum um aldamótin 1800. Svo eru það persónulegu fletirnir, örvæntingin, eins og hvað gerir heimilislaus kona sem eignast lausaleikskróa á flakki. Rannsókn á ævi Ingiríðar hefur svarað öllum þessum spurningum og svo miklu fleiri.“

Með álfum er fyrsta bók höfundar, má eiga von á fleiri?

„Ég hef afskaplega gaman af því að rannsaka og skrifa sagnfræði þannig að vonandi gefst mér tækifæri á að skrifa fleiri bækur um sögu Íslands. Nú er ég hins vegar að vinna að riti um sögu vændis í Salamanca á Spáni, þar sem ég hef búið í um fjögur ár. Ritið mun ég leggja inn sem doktorsritgerð við Háskólann í Salamanca, en það er of snemmt að segja til um hvenær það rit kemur út og alls óvíst að það komi út á íslensku.“

Ekkert á heimleið?

„Ég mun alltaf líta á Ísland sem mitt heimili og stundum sakna ég þess mjög mikið. Ég mun koma heim en hvort það verður eftir tvö ár eða 20 veit ég ekki.“

Yngvi Leifsson er þó á leið heim til Íslands í frí og mun dvelja á Húsavík yfir hátíðarnar. Með álfum fæst nú þegar í öllum betri bókaverslunum landsins. Á Þorláksmessu verður Yngvi staddur í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík Þar sem hann mun árita bók sína.

„Já ætli það verði ekki fljótlega eftir skötu,“ segir hann að lokum.

Með álfum

Egill Páll Egilsson nemi í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri tók þetta viðtal við Yngva og birtist það á fréttavef fjölmiðlafræðinema, Landpóstinum.

640.is fékk góðfúslegt leyfi hjá Agli til að endurbirta viðtalið.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744