Maríuerla er Fugl ársins 2022

Maríuerla er Fugl ársins 2022 en alls kepptu sjö fuglategundir um titilinn Fugl ársins í keppni sem Fuglavernd stóð nú fyrir annað árið í röð.

Maríuerla er Fugl ársins 2022
Almennt - - Lestrar 74

Maríuerla. Ljósmynd: Ingi Steinar Gunnlaugsson.
Maríuerla. Ljósmynd: Ingi Steinar Gunnlaugsson.
Maríuerla er Fugl ársins 2022 en alls kepptu sjö fugla-tegundir um titilinn Fugl ársins í keppni sem Fuglavernd stóð nú fyrir annað árið í röð.

Fimm fuglanna höfðu kosningastjóra sem unnu ötult og óeigin-gjarnt kynningarstarf fyrir sína smávini. 

Maríuerlan kynnti sig þó sjálf með hlýlegri nærveru sinni um allt land og þurfti ekki talsmann til að sigra keppnina með yfirburðum og 21% atkvæða.

Í öðru og þriðja sæti lentu hinir ólíku en glæsilegu fuglar, himbrimi og auðnutittlingur, með 14% atkvæða hvor um sig. Alls kusu 2100 mannns um fugl ársins 2022. 
 
Um maríuerluna
 
Maríuerla dvelur í Afríku á veturna en algengt er að finna hana hér á landi í kring um mannabústaði, frá vori og fram á haust. Hún er nokkuð gæf og virðist trygg sínum heimahögum. Hún lifir á smádýrum sem hún veiðir á flugi eða á hlaupum, er iðin, sítifandi og
flögrandi í leit sinni að æti.
 
Maríuerlan hefur sigrað hjörtu íslendinga fyrir löngu ef marka má ljóðabrot Guðfinnu Jónsdóttur frá Hömrum (1899-1946).
 
Máríuerla 
Sendir drottins móðir, Maríá, 
mildar gjafir himni sínum frá. 
Flaug úr hennar hendi vorsins perla, 
heilög dúfa, lítil maríuerla. 
 
Létt á flugi, kvik og fjaðurfín 
flýgur hún um auðan geim til þín. 
Í veggnum þínum vill hún hreiður búa, 
varnarlaus á þína miskunn trúa. 
 
Dável svarta húfan henni fer, 
hneigir kolli ákaft fyrir þér. 
Strá úr veðurbörðu, bleiku sefi 
ber hún eins og friðargrein í nefi. 
 
Sérhvert vor um varpa og bæjarhól 
vappar söngvin erla á gráum kjól, 
flögrar eins og bæn um geiminn bláa, 
bæn fyrir hinum varnarlausa smáa.
 
Um keppnina Fugl ársins
 
Markmiðið með keppninni er að draga fram og kynna nokkrar fuglategundir sem finnast hér á landi, fjalla um stofnstærðir, búsvæði, fæðuval og verndarstöðu. Með þessu vill Fuglavernd leggja sitt af mörkum til að efla fræðslu, samtal og umfjöllun um stöðu fuglastofna og um mikilvægi fugla í lífríkinu.
 
Í hópi þeirra 20 tegunda sem tóku þátt þetta árið og lesa má um á www.fuglarsins.is eru eftirfarandi tegundir sérstakar deilitegundir, sem þýðir að þær eru einskonar staðbundin fjölskylda sem verpur að stærstu eða öllu leiti hér á landi og hefur þróað með sér útlit frábrugðið öðrum stofnum, en þeir eru: auðnutittlingur, hrossagaukur, jaðrakan, lóuræll, músarrindill, rjúpa og skógarþröstur. 
 
Þá eru þó nokkrar tegundir af þessum tuttugu á válista hér á landi samkvæmt Náttúrufræðistofnun Íslands: Lundi er í bráðri hættu, kjóinn er í hættu, himbrimi, hrafn, kría, súla og toppskarfur í nokkurri hættu og að lokum eru rjúpa og silfurmáfur í yfirvofandi hættu. 
 
Fuglavernd óskar Íslendingum til hamingju með Maríuerluna, Fugl ársins 2022!

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744