Lokahóf Völsungs - Aron Dagur og Dagbjört valin bestÍţróttir - - Lestrar 772
Lokahóf meistaraflokka og 2. flokks karla og kvenna í knattspyrnu fór fram viđ hátíđlega athöfn í Hvammi á laugardagskvöldiđ var.
Veittar voru viđurkenningar fyrir bestu og efnilegustu leikmenn flokkanna ásamt ţví sem veitt var viđurkenning fyrir leikmann ársins.
Meistaraflokkur kvenna lauk sumrinu í 2. deild kvenna međ 22 stig í 5. sćti deildarinnar. Einnig var skráđ liđ til leiks í 2. flokki kvenna í fyrsta skipti í langan tíma. Liđiđ var ađ mestu skipađ leikmönnum á 3. flokks aldri og stóđu ţćr sig međ prýđi.
Meistaraflokkur karla var í mikilli baráttu fram í síđasta leik um ađ komast uppúr 2. deild karla en endađi ađ lokum í 4. sćti deildarinnar međ 40 stig. 2. flokkur karla tók ţátt í B-deild og enduđu eftir mikla baráttu í 9. sćti.
Alls tóku 42 leikmenn ţátt í verkefnum meistaraflokks karla og kvenna í sumar. Af ţessum 42 leikmönnum voru 36 leikmenn uppaldir Völsungar. Eitthvađ sem viđ getum veriđ gríđarlega stolt af sem Völsungar en gerist samst sem áđur ekki af sjálfu sér.
Hápunktur lokahófsins var ţegar leikmenn og ţjálfarar kusu um bestu og efnilegustu leikmenn flokkanna. Einnig voru veitt verđlaun fyrir leikmann ársins. Leikmađur ársins er valinn sá leikmađur sem er ómissandi liđsfélagi, góđ fyrirmynd innan vallar sem utan, mikill félagsmađur og ţví félaginu til sóma í ţeim störfum sem falla til og hefur sinnt skyldum sínum sem Völsungur.
Allir verđlaunahafar kvöldsins hjá Völsungi.
2. flokkur kvenna
Efnilegasti leikmađur: Marta Sóley Sigmarsdóttir
Besti leikmađur: Árdís Rún Ţráinsdóttir
2. flokkur karla
Efnilegasti leikmađur: Stefán Óli Hallgrímsson
Besti leikmađur: Ólafur Jóhann Steingrímsson
Meistaraflokkur kvenna
Efnilegasti leikmađur: Hulda Ösp Ágústsdóttir
Besti leikmađur: Dagbjört Ingvarsdóttir
Leikmađur ársins: Harpa Ásgeirsdóttir
Meistaraflokkur karla
Efnilegasti leikmađur: Ólafur Jóhann Steingrímsson
Besti leikmađur: Aron Dagur Birnuson
Leikmađur ársins: Halldór Árni Ţorgrímsson
Fv. Aron Dagur Birnuson, Ólafur Jóhann Steingrímsson, Dagbjört Ingvarsdóttir og Hulda Ösp Ágústsdóttir.
Fleiri myndir af hófinu má sjá á heimasíđu Völsungs en ţćr tók Hjálmar Bogi Hafliđason.