Lokahóf Völsungs - Aron Dagur og Dagbjört valin best

Lokahóf meistaraflokka og 2. flokks karla og kvenna í knattspyrnu fór fram við hátíðlega athöfn í Hvammi á laugardagskvöldið var.

Lokahóf Völsungs - Aron Dagur og Dagbjört valin best
Íþróttir - - Lestrar 997

Bestu og efnilegustu leikmenn á lokahófi Völsungs.
Bestu og efnilegustu leikmenn á lokahófi Völsungs.

Lokahóf meistaraflokka og 2. flokks karla og kvenna í knattspyrnu fór fram við hátíðlega athöfn í Hvammi á laugardagskvöldið var.

Veittar voru viðurkenningar fyrir bestu og efnilegustu leikmenn flokkanna ásamt því sem veitt var viðurkenning fyrir leikmann ársins.

Meistaraflokkur kvenna lauk sumrinu í 2. deild kvenna með 22 stig í 5. sæti deildarinnar. Einnig var skráð lið til leiks í 2. flokki kvenna í fyrsta skipti í langan tíma. Liðið var að mestu skipað leikmönnum á 3. flokks aldri og stóðu þær sig með prýði.

Meistaraflokkur karla var í mikilli baráttu fram í síðasta leik um að komast uppúr 2. deild karla en endaði að lokum í 4. sæti deildarinnar með 40 stig. 2. flokkur karla tók þátt í B-deild og enduðu eftir mikla baráttu í 9. sæti.

Alls tóku 42 leikmenn þátt í verkefnum meistaraflokks karla og kvenna í sumar. Af þessum 42 leikmönnum voru 36 leikmenn uppaldir Völsungar. Eitthvað sem við getum verið gríðarlega stolt af sem Völsungar en gerist samst sem áður ekki af sjálfu sér.

Hápunktur lokahófsins var þegar leikmenn og þjálfarar kusu um bestu og efnilegustu leikmenn flokkanna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir leikmann ársins. Leikmaður ársins er valinn sá leikmaður sem er ómissandi liðsfélagi, góð fyrirmynd innan vallar sem utan, mikill félagsmaður og því félaginu til sóma í þeim störfum sem falla til og hefur sinnt skyldum sínum sem Völsungur.

Lokahóf Völsungs

Allir verðlaunahafar kvöldsins hjá Völsungi.

2. flokkur kvenna
Efnilegasti leikmaður: Marta Sóley Sigmarsdóttir
Besti leikmaður: Árdís Rún Þráinsdóttir

2. flokkur karla
Efnilegasti leikmaður: Stefán Óli Hallgrímsson
Besti leikmaður: Ólafur Jóhann Steingrímsson

Meistaraflokkur kvenna
Efnilegasti leikmaður: Hulda Ösp Ágústsdóttir
Besti leikmaður: Dagbjört Ingvarsdóttir
Leikmaður ársins: Harpa Ásgeirsdóttir

Meistaraflokkur karla
Efnilegasti leikmaður: Ólafur Jóhann Steingrímsson
Besti leikmaður: Aron Dagur Birnuson
Leikmaður ársins: Halldór Árni Þorgrímsson

Lokahóf Völsungs

Fv. Aron Dagur Birnuson, Ólafur Jóhann Steingrímsson, Dagbjört Ingvarsdóttir og Hulda Ösp Ágústsdóttir.

Fleiri myndir af hófinu má sjá á heimasíðu Völsungs en þær tók Hjálmar Bogi Hafliðason.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744