02. ágú
			Loftbrú milli lands og Eyja alla helgina – allt að fyllastFréttatilkynning -  - Lestrar 556
			
		Flugfélagið Ernir hefur haft í nógu að snúast í dag til allra áfangastaða enn þó lang mest flogið á Þjóðhátíð í Eyjum.
Áætlað er að fara 12 ferðir til Vestmannaeyja frá Reykjavík með rúmlega 200 farþega sem ætla að skemmta sér á Þjóðhátíð í Eyjum.
Einnig verður töluvert um flug á laugardegi og sunnudegi og er enn hægt að finna laust til Eyja um helgina. Á mánudeginum er allt orðið fullt frá Eyjum og byrjar Flugfélagið Ernir að fljúga 06:30 frá Eyjum og fer um 17 ferðir með um 350 farþega.

 































 
									 


 
 

 
 






























 640.is á Facebook
 640.is á Facebook