20. nóv
Lóðasamningur Norðurþings og PCC SR framlengdur til febrúarlokaAlmennt - - Lestrar 240
Á fundi skipulags- og umhverfisnefndar Norðurþings í vikunni lá fyrir erindi frá PCC Seaview Residences ehf þar sem óskað var eftir að svæði E í deiliskipulagi Holtahverfis verði áfram tekið frá vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar fyrirtækisins.
Óskað var eftir að fyrri lóðarráðstöfun frá því mars sl. verði framlengd um sex mánuði en skipulags- og umhverfisnefnd lagði til við sveitarstjórn að fyrri samningur við PCC Seaview Residences um svæði E í Holtahverfi verði framlengdur til loka febrúar 2017. (norduthing.is)