Lífið er of stutt fyrir eitthvað rugl

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla.

Lífið er of stutt fyrir eitthvað rugl
Almennt - - Lestrar 129

Hrefna, Elísabet og Lára með Guðna forseta.
Hrefna, Elísabet og Lára með Guðna forseta.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla. 

Á Forvarnardaginn ræða nemendur um nýjustu niðurstöður rannsókna á þeirra aldurshóp og hugmyndir sínar um samveru, íþrótta- og tómstundastarf og því að leyfa heilanum að þroskast og hvaða áhrif þessir verndandi þættir hafa á líf þeirra.

Embætti landlæknis stendur að deginum í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla og Samstarfi félagasamtaka í forvörnum.

Nemendur geta skilað inn myndbandi, veggspjaldi eða öðru efni sem tengist deginum.

Þrjár stúlkur í Borgarhólsskóla tóku sig saman og gerðu ansi skemmtilegt verkefni ogsendu í verðlaunaleik forvarnardagsins.

Á heimasíðu skólans segir að skemmst sé frá því að segja að þær sigruðu keppnina og tóku á móti verðlaunum hjá forseta Íslands á Bessastöðum. Þær Elísabet Ingvarsdóttir, Hildur Gauja Svavarsdóttir og Hrefna Ósk Davíðsdóttir sömdu texta við lag Pollapönks, Burtu með fordóma og útbjuggu myndband með söng.

Það er best að bíða með áfengið, veipið og tóbakið.

640.is óskar stúlkunum til hamingju með árangurinn en myndbandi má skoða hér að neðan.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744