KvEnduro hópurinn hjólar á HúsavíkFréttatilkynning - - Lestrar 670
Á þriðjudaginn 24. júlí ætlar KvEnduro, hópur fjallahjólakvenna frá Akureyri og nágrenni, að heimsækja Húsavík og nærliggjandi svæði undir leiðsögn MTB Húsavík.
KvEnduro hópurinn hefur starfað á Akureyri síðan 2016, er einn fjölmennasti áhugamannahópur fjallahjólreiða á Íslandi og sífellt bætist í. Stelpurnar hjóla saman að minnsta kosti einu sinni í viku yfir sumarmánuðina en frá upphafi hefur áhersla verið lögð á að allar konur geti tekið þátt óháð reynslu af fjallahjólreiðum. Aðalmálið er að hafa gaman og njóta þess að hjóla saman.
Ferðinni lýkur svo í mat og með því á vel völdum stað á Húsavík og gera má ráð fyrir góðu stuði.
Áhugasömum konum er bent á að hafa samband við Elínu Ólafsdóttur á netfangið eaolafs@gmail.com eða í síma 868-2358.