Konum fjölgar hlutfallslega í hópi starfsfólks PCC BakkiSilicon

Við upphaf árs 2024 starfa 133 starfsmenn hjá PCC BakkiSilicon og þar af eru 114 karlar og 19 konur.

PCC á Bakka.
PCC á Bakka.

Við upphaf árs 2024 starfa 133 starfsmenn hjá PCC BakkiSilicon og þar af eru 114 karlar og 19 konur.

Hlutfall kvenna sem starfar hjá fyrirtækinu eykst á milli áranna 2023 og 2024 úr 9,6% í 14,52% eða um tæplega 5 prósentustig.Þar af eru 114 karlar og 19 konur. Hlutfall kvenna sem starfar hjá fyrirtækinu eykst á milli áranna 2023 og 2024 úr 9,6% í 14,52% eða um tæplega 5 prósentustig.

Þetta kemur fram á heimasíðu Gaums, Sjálfbærnisverkefnisins á Norðausturlandi.

Þar segir jafnframt að konum í hópi starfsfólks PCC hafi fækkað á árunum 2021, 2022 og 2023 og hafði hlutfallið ekki verið lægra áður en það var í upphafi árs 2023.

Það er aðeins árin 2019 og 2020 sem hlutfall kvenna hefur verið hærra í hópi starfsfólks PCC BakkiSilicon, en þá voru konur annars vegar 18% starfsfólks og hins vegar 16%. 

Sjá nánar undir vísi 1.3


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744