04. nóv
Kátir íslenskunemar á RaufarhöfnAlmennt - - Lestrar 204
Í fyrradag lauk 30 stunda íslenskunámskeiði Þekkingarnets Þingeyinga á Raufarhöfn.
Á heimasíðu ÞÞ segir að sex áhugasamir nemendur hafi setið námskeiðið en þeir koma frá Búlgaríu og Rúmeníu.
Kennari var Silja Jóhannesdóttir og stunduðu nemendur nám á þremur getustigum; íslensku 1A, 1B og 2A.
Boðið var upp á góðar veitingar í síðasta tímanum og fengu nemendur viðurkenningarskjöl að lokum.(hac.is)