Jólin þín og mín

Nú styttist í tónleika Tónasmiðjunnar, Jólin þín og mín, en þeir fara fram í Húsavíkurkirkju nk. sunnudag kl. 17.

Jólin þín og mín
Almennt - - Lestrar 221

Nú styttist í tónleika Tónasmiðjunnar, Jólin þín og mín, en þeir fara fram í Húsavíkurkirkju nk. sunnudag kl. 17.

Þar munu ýmis jólalög hljóma í flutningi Tónasmiðjunnar og gesta.
 
Flottur hópur flytjenda á ýmsum aldri, hljómsveit, bakraddir, einsöngvarar ásamt heiðursgestum munu koma fram og spila og syngja inn jólin og koma tónleikagestum í sannkallað hátíðarskap á aðventunni.
 
Heiðursgestir tónleikanna verða söngkonurnar  Stefanía Svavarsdóttir og Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
 
Ágóði af sýningunni mun renna til Velferðarsjóðs Þingeyinga sem árlega hjálpar þeim sem minna mega sín. 
 
Ljósmynd Hafþór - 640.is
 
Tónlistarfólkið gaf sér tíma frá æfingum í dag og stilltu sér upp til myndatöku.
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744