Jóhann Kristinn snýr aftur til Þórs/KA

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Þórs/KA næstu þrjú árin.

Jóhann Kristinn snýr aftur til Þórs/KA
Íþróttir - - Lestrar 199

Jóhann Kr. Gunnarsson.
Jóhann Kr. Gunnarsson.

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Þórs/KA næstu þrjú árin. 

Frá þessu segir á heimasíðu Þórs en Jóhann Kristinn hefur þjálfað karlalið Völsungs undanfarin ár:

Jóhann Kristinn er Þór/KA og Akureyringum að góðu kunnur, en hann tók við þjálfun liðsins haustið 2011 og stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils 2012, á sínu fyrsta tímabili. Þá fór hann með liðið í Evrópukeppni árið 2013 ásamt því að komast í bikarúrslitaleikinn.

Öll fimm árin sem Jói þjálfaði Þór/KA varð liðið í einu af fjórum efstu sætum deildarinnar. Hann fór einnig með Þór/KA í undanúrslit Lengjubikarsins 2013, 2014, 2015 og 2016. Þá þjálfaði hann lið Þórs/KA Hamranna í 2. flokki 2014-2016 og vann bikarmeistaratitil og silfurverðlaun 2015 og Íslandsmeistaratitil 2016.

Hann kveðst spenntur fyrir verkefninu. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur í Þór/KA og það er mikill heiður að fá að taka við þessu starfi á ný. Ég finn fyrir miklum krafti og metnaði hjá stjórninni og líst vel á þeirra hugmyndir og stefnu. Ég veit að efniviðurinn er mikill hérna og það býr heilmikið í liðinu. Það er bara spenningur að byrja og hjálpa liðinu að vaxa og dafna. Það er engin spurning að það er skýr stefna Þór/KA að vera eitt af sterkustu liðum landsins. Ég er alveg sannfærður um að framtíðin er björt hjá liðinu og leikmönnum þess,“ sagði Jói í samtali við tíðindamann heimasíðunnar.

Jói hefur mikla reynslu af þjálfun, bæði í meistaraflokki kvenna og karla, en hann hefur þjálfað karlalið Völsungs um árabil með hléum, en hafði áður einnig þjálfað kvennalið félagins. Samkvæmt gagnagrunni KSÍ hefur hann verið skráður þjálfari á leikskýrslu í 146 kvennaleikjum með Þór/KA og Völsungi og 235 karlaleikjum með Völsungi og Boltafélagi Húsavíkur.

Höfum mikla trú á Jóa

Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, lýsir yfir mikilli ánægju með að fá Jóa aftur til okkar.

„Við í stjórninni erum rosalega ánægð með þessa ráðningu. Jói er með mikla reynslu af þjálfun og gerði Þór/KA meðal annars að Íslandsmeisturum 2012, á sínu fyrsta tímabili með liðið. Hann hefur mikinn metnað fyrir Þór/KA og veit hvað þarf til að ná árangri. Við teljum að hann sé rétti þjálfarinn fyrir okkur og hann mun klárlega bæta okkur sem lið og sem einstaklinga. Við vitum hvað býr í stelpunum okkar og við erum fullviss um að Jói mun ná því besta fram í leikmönnum og liðinu öllu,“ sagði Dóra Sif Sigtryggsdóttir í samtali við tíðindamann heimasíðunnar.

Stjórnin mun í samstarfi við þjálfara vinna að því að efla tengingu og auka samstarf á milli allra flokkanna, en eins og kunnugt er rekur Þór/KA nú 2. og 3. flokk, ásamt meistaraflokki.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744