20. júl
Jóa fór holu í höggiÍþróttir - - Lestrar 453
Jóhanna Guðjónsdóttir fór holu í höggi á Katlavelli í gær en það gerði hún á 3. holu.
Jóa notaði trésjöuna sína við þetta en hún var í holli með Kristínu Magnúsar, Magga Andresar og Ásmundi Bjarna.
Á heimasíðu GH segir að Guðmundur golfkennarinn hafi farið holu í höggi í byrjun júlí þannig að Katlavöllur sé greinilega góður staður fyrir hole in one.