Jákvćđ rekstrarafkoma Langanesbyggđar

Afkoma A og B hluta sveitarsjóđs Langanesbyggđar fyrir fjármagnsliđi (EBITDA) var jákvćđ um 176,1 m.kr. á síđasta ári, eđa sem svarar 20,4% af tekjum

Jákvćđ rekstrarafkoma Langanesbyggđar
Fréttatilkynning - - Lestrar 517

Afkoma A og B hluta sveitarsjóđs Langanesbyggđar fyrir fjármagnsliđi (EBITDA) var jákvćđ um 176,1 m.kr. á síđasta ári, eđa sem svarar 20,4% af tekjum sveitarfélagsins.

Ţetta kom fram viđ fyrri umrćđu ársreiknings Langanesbyggđar á fundi sveitarstjórnar í gćr. Rekstrarniđurstađa ársins 2017 er jákvćđ um 94,6 m.kr. fyrir A og B hluta, en var jákvćđ 41,1 m.kr. áriđ 2016, rekstrarniđurstađa er ţví 53,6 m.kr. betri en á fyrra ári. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lćkka á milli ára. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta áriđ 2017 voru 32,4 m. kr. en voru áriđ 2016 alls 35,8 m.kr. 

Skuldahlutfall A og B hluta Langanesbyggđar var í árslok 2017, 70% en var 85% í árslok 2016, en má skv. sveitarstjórnarlögum má skuldahlutfall ekki vera hćrra en 150%. Engin ný langtímalán voru tekin á árinu og lćkkuđu langtímaskuldir viđ lánastofnanir um 66,4 m.kr. Eiginfjárhlutfall í árslok 2017 var 50,1% en var 43,7% í árslok 2016.

Fram kom í framsögu Elíasar Péturssonar sveitarstjóra međ ársreikningunum ađ hann fagnađi ţeim frábćra árangri sem náđst hefđi í ađ bćta fjárhagsstöđu Langanesbyggđar undanfariđ og á kjörtímabilinu öllu. Einnig ţakkađi sveitarstjóri starfsfólki sveitarfélagsins gott samstarf og ómetanlegt framlag ţess viđ ađ ná ţessum árangri. Elías hefur veriđ sveitarstjóri í Langanesbyggđ frá ágúst 2014.

Eftirfarandi eru helstu niđurstöđur:

  • Samkvćmt rekstrarreikningi ársins 2017 námu rekstrartekjur A og B hluta 863,0 m.kr. samanboriđ viđ 814,7 m.kr. á árinu 2016. Hćkkun milli ára nemur 5,9%. 
  • Rekstrargjöld A og B hluta, ţ.e. laun og launatengd gjöld og annar rekstrarkostnađur námu 687,0 m.kr. á árinu 2017 en voru 686,5  m.kr. á árinu 2016. Hćkkun frá fyrra ári nemur 0,1%. 
  • Laun og launatengd gjöld voru 437,8 m.kr. áriđ 2017 samanboriđ viđ 430,2 m.kr. áriđ 2016. Hćkkunin frá fyrra ári nam 1,8%. 
  • Annar rekstrarkostnađur nam 249,7 m.kr. áriđ 2017 samanboriđ viđ 251,9 m.kr. 2016. Lćkkun frá fyrra ári nam 0,9%.
  • Rekstrarniđurstađa fyrir afskriftir og fjármagnsliđi (EBITDA) vegna ársins 2017 nam 176,1 m.kr. eđa 20,4% af tekjum, en fyrir áriđ 2016 var hún 128,1 m.kr.
  • Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lćkka á milli ára. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta áriđ 2017 voru 32,4 m. kr. en voru áriđ 2016 alls 35,8 m.kr. 
  • Rekstrarniđurstađa ársins 2017 er jákvćđ um 94,6 m.kr. fyrir A og B hluta, en var jákvćđ 41,1 m.kr. áriđ 2016, rekstrarniđurstađa er ţví 53,6 m.kr. betri en á fyrra ári.
  • Samkvćmt sjóđstreymisyfirliti ársins 2017 nam veltufé frá rekstri 153,4 m.kr. samanboriđ viđ 104,5 m.kr. á árinu 2016. 
  • Skuldahlutfall A og B hluta Langanesbyggđar var í árslok 2017, 70% en var 85% í árslok 2016. Samkvćmt sveitarstjórnarlögum nr.138/2011 má skuldahlutfall ekki vera hćrra en 150%. Engin ný langtímalán voru tekin á árinu og lćkkuđu langtímaskuldir viđ lánastofnanir um 66,4 m.kr. Eiginfjárhlutfall í árslok 2017 var 50,1% en var 43,7% í árslok 2016.

Sjá fréttatilkynningu hér.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744