Jafnréttisstofa með fyrirlestur hjá Völsungi

Jafnréttisstofa heimsótti Völsung í gær, sunnudag, og hélt fyrirlestur.

Jafnréttisstofa með fyrirlestur hjá Völsungi
Íþróttir - - Lestrar 440

Arnfríður Aðalsteinsdóttir.
Arnfríður Aðalsteinsdóttir.

Jafnréttisstofa heimsótti Völsung í gær, sunnudag, og hélt fyrir-lestur.

Allir þjálfarar og stjórnarmenn á vegum félagsins voru hvattir til að mæta og kynna sér málið. Einnig mætti fulltrúi frá HSÞ á fyrirlesturinn.

Arnfríður Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, talaði og fjallaði hún um staðalmyndir kynjanna og skyldur íþróttafélaga samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. 

Á heimasíðu Völsungs segir að fyrirlesturinn hafi verið áhugaverður í allastaði og muni nýtast við áframhaldandi vinnu Völsungs að inngöngu í fyrirmyndarfélag ÍSÍ.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744