Ingibjörg og Óli Mærudagsmeistarar í strandblakiÍþróttir - - Lestrar 835
Hið árlega Mærudagamót í Strandblaki fór fram í Suðurfjöru í gær, fimmtudag. Alls voru 12 lið skráð til leiks og keppt var á tveimur völlum, en alls voru spilaðir 22 leikir.
Mikil og skemmtileg tilþrif sáust í blakinu í gær, margir voru vel skrýddir í tilefni Mærudaga. Yngsti keppandinn var tólf ára gamall en flestir keppenda komu úr röðum blaköldunga Völsungs.
Mærudagameistarar í ár eru hjónin Ingibjörg og Óli, í öðru sæti eru blaktöffararnir Bjarni Páll og Siggi og í því þriðja Svenna&Bjargar synir, Daníel og Bjarki. Blakhjónin Eyja og Trausti voru í fjórða sæti.
Keppt var í tveggja manna liðum en nokkur hópur blakara hefur leikið sér í fjörunni í sumar þegar vel viðrar og gert er ráð fyrir að blaknetið muni standa uppi í fjörunni fram eftir ágúst mánuði.
Strandblakið er orðinn fastur liður í dagskrá Mærudaga og vill mótsstjórn þakka keppendum og áhorfendum fyrir ánægjulegt mót.
Gleðilega Mærudaga.
Blakdeild Völsungs.
Mærudagsmeistararnir Óli og Ingibjörg.
Blaktöffararnir Bjarni Páll og Siggi voru í öðru sæti.
Daníel og Bjarki synir Bjargar og Svenna náðu þriðja sætinu.
Blakhjónin Eyja og Trausti voru í fjórða sæti.
Tilþrifin voru mörg og glæsileg á Mærudagsmótinu í strandblaki.
Ljósmyndirnar tók Ella Sig.