13. feb
Icelandair Hotels kaupa Hótel ReynihlíðAlmennt - - Lestrar 279
Icelandair Hotels hafa keypt húsnæði og rekstur Hótels Reynihlíðar við Mývatn.
Þetta staðfestir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmda-stjóri Icelandair Hotels í samtali við Morgunblaðið.
Seljendur eru Pétur Snæbjörnsson hótelstjóri og Erna Þórarinsdóttir. Hótel Reynihlíð hóf rekstur árið 1942, eða fyrir 76 árum, og stendur því á gömlum merg.
Magnea Þórey segir að þau ætli sér að leggja áherslu á gæði og þetta sé liður í að styrkja uppbyggingu gæðaferðaþjónustu á landsbyggðinni og er í samræmi við langtímastefnu Icelandair Hotels. (mbl.is)