Íbúar Norðurþings orðnir 3.000 talsins

Íbúar Norðurþings eru nú orðnir þrjú þúsund talsins.

Íbúar Norðurþings orðnir 3.000 talsins
Almennt - - Lestrar 296

Íbúar Norðurþings eru nú orðnir þrjú þúsund talsins.

Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að þegar Sveinbjörn Árni Lund og Tinna Ósk Óskarsdóttir eignuðust sinn annan son þann 19. maí síðastliðinn náðu íbúar Norðurþings þessum áfanga.

Þar segir einnig að það sé ósk sveitarfélagsins að gæfan fylgi drengnum, sem enn hefur ekki fengið nafn og foreldrum hans um ókomna framtíð og að vel takist til við þjónustu við fjölskylduna, sem og aðra íbúa Norðurþings, hér eftir sem hingað til.

Íbúar Norðurþings orðnir 3.000

Í tilefni þessara tímamóta  færði Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri fjölskyldunni örlítinn viðurkenningarvott frá sveitarfélaginu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744