Hyggja á beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar

Íslenska ferðaskrifstofan Trans-Atlantic hyggst í samstarfi við eistneska flugfélagið Estonian Air hefja áætlunarflug milli Kaupmannahafnar og Akureyrar

Frá Kaupmannahöfn.
Frá Kaupmannahöfn.

Íslenska ferðaskrifstofan Trans-Atlantic hyggst í samstarfi við eistneska flugfélagið Estonian Air hefja áætlunarflug milli Kaupmannahafnar og Akureyrar sumarið 2016.

Þessi nýja flugleið verður hluti af leiðakerfi Estonian Air og til sölu á heimasíðu þeirra, heimasíðu Trans Atlantic og á öllum helstu bókunarvélum.

 

Flogið verður á 84 sæta vélum af gerðinni Bombardier CRJ900. Flugið hefst í maí 2016 og flogið verður einu sinni í viku á laugardögum til 24. september. Ef nýting flugsins verður góð eru möguleikar á aukinni tíðni og lengra tímabili í framtíðinni.

Stefnt er að því að hægt verði að bóka í þessi flug frá og með 1. nóvember nk.

Upplýsingar um það verður að finna innan tíðar á heimasíðum Trans Atlantic og Estonian Air. (akureyri.is)

Sjá frétt RÚV um málið


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744