Hvers virði er mannorð þitt ?-Misnotkun á hinu guðdómlega stigi-Almennt - - Lestrar 570
Ágústa Ágústsdóttir í Garði 2 í Kelduhverfi sendi 640.is eftirfarandi grein til birtingar og ber hún nafnið: Hvers virði er mannorð þitt? Og undirtitillinn er: -Misnotkun á hinu guðdómlega stigi-
Greinina skrifar Ágústa í kjölfar greinar sem hún birti í Skarpi og víðar fyrir skömmu og kom einnig fram í viðtali í Vikunni, og fjalla um dóm yfir eiginmanni Ágústu vegna meintra kynferðisafbrota.
Hvers virði er mannorð þitt? Oft hef ég velt þessari spurningu fyrir mér
mína stuttu lífsleið. En aldrei þó eins oft og undanfarin 2 ár. Hefur þú, kæri lesandi einhvern tímann velt þessu fyrir
þér? Hefur þú gert upp við þig hvort mannorð þitt sé meira virði heldur en nágranna þíns, mannsins þíns,
barnsins þíns, yfirmanns þíns o.s.frv.? Er það þér þess virði að leggja mannorð annars manns eða heillar fjölskyldu
í rúst til þess eins að þú eða aðrir hagnist á því, eða jafnvel til að fela mistök þín eða
vanhæfni í starfi?
Hversu langt myndir þú ganga til að verja æru þína, ástvina
eða vina þinna ef þeir lægju undir rangri sök og þú gætir stigið fram með sannleikann, en værir þá um leið að
brjóta trúnað samkvæmt lögum?
Eins og mannflóran er misjöfn, þá hefur mannskepnan alltaf haft þá
tilhneigingu að draga fólk í dilka og hólfa það niður, eftir þjóðfélagsstöðu, menntun o.fl. Ég spyr: Er maður
í valdastöðu sem á hreina sakaskrá, keyrir um á flottum bíl og býr í fallegu húsi, heiðarlegri og áreiðanlegri heldur
en skuldum vafinn 3ja barna fráskilinn faðir sem er á atvinnuleysisskrá, og vann áður við að skúra gólf til að hafa ofan í sig og
á? Er valdamaðurinn trúverðugri vegna stöðu sinnar í þjóðfélaginu?
Eftir að opið bréf mitt til embættismanns birtist fyrir skömmu, hafa mér
borist ótal símhringingar, tölvupóstar, og gögn frá fólki (konum jafnt sem karlmönnum) þar sem fólk lýsir reynslu sinni af
dómstólum og ákveðins embættismanns. Það er án nokkurs efa biðröð af fólki sem bíður eftir tækifæri á
að koma fram með sín mál og tala. Fólk sem vill koma hinni hlið mála sinna á framfæri.
Þetta er án nokkurs efa málaflokkur sem þarf að fara kasta ljósi
á, en einhverra hluta vegna er það þaggað niður, eða fjölmiðlar neita að fjalla um það vegna eðli þess, þ.e. á
þeim grundvelli að þau séu svo viðkvæm. Það er enginn ósammála því að þessi mál séu ekki
viðkvæm, einmitt þess vegna þarf að fjalla um þau. Þetta snertir nefnilega fleiri en bara meinta þolendur geranda.
Ég tek það hér fram áður en ég held áfram að
ég er ekki að verja þá sem sannarlega hafa gerst brotlegir um misnotkun, og er hreint ekki að tala um þann hóp fólks. Ég er að tala um
þá hlið þessara málefna að saklausir menn eru enn ásakaðir og jafnvel dæmdir í fangelsi fyrir kynferðisbrot sem þeir hafa ekki
framið. Hvers vegna er aldrei talað um konur sem beita ofbeldi eða misnota? Þær eru svo sannarlega til staðar. En einhvern veginn er þessi málaflokkur
hundsaður. Það er t.d. þekkt aðferð hjá konum sem standa í skilnuðum eða forræðisdeilum, að þær beita þeim
ráðum oft á tíðum að saka fyrrum eiginmenn sína eða barnsfeður um ofbeldi eða misnotkun, þá annað hvort gegn sér eða
börnum þeirra.
Mörg mál hafa komið upp í gegnum árin þar sem menn eru
ásakaðir um kynferðislega misnotkun af konum og ungum stúlkum. Mörg mál hafa endað þannig að upp hefur komist um lygar kvennanna, og þær
jafnvel hlotið dóm fyrir. En á móti hafa líka mál farið í gegn þar sem ósannsögli kvenna hefur ekki komið í ljós
og menn þ.a.l. dæmdir á framburði einum saman, án nokkurra sannanna. Hvers konar réttarkerfi er það? Ég hef rætt við hina ýmsu
lögfræðinga og þeir verið sannfærðir um að menn hafi verið dæmdir saklausir í fangelsi fyrir rangar sakagiftir. Sumir
lögfræðingar vita hreinlega um ákveðna menn sem sitja eða hafa setið saklausir inni.
Þá spyr maður sig að því hvort fólk haldi raunverulega að
dómskerfið okkar sé svo heilagt að ekkert óhreint fái þrifist þar? Eru dómarar heilagri en aðrir menn? Eru þeir ekki bara mennskir
eins og ég og þú? Eða heldur almenningur að þeir séu guðir sem að aldrei geri mistök eða geti ekki tekið rangar ákvarðanir
vegna þeirra eigin fullkomnunar? Geta dómarar ekki verið spilltir eins og ákveðnir pólitíkusar sem í skjóli valds síns geta leyft
sér að halda hlífiskildi yfir „ákveðnum embættismanni“ vegna margra ára vináttutengsla byggða á .....................?
Já nú megið þið áhugasömu giska.
Maður skyldi ætla að eftir síðastliðin ár hruns og
uppljóstrana, þar sem alþjóð hefur orðið vitni að ótrúlegri spillingu innan og utan viðskiptakerfis okkar, að fólk væri
orðið svolítið opnara fyrir þeirri staðreynd að hér á landi er stjórnsýslan ekki öll þar sem hún er séð.
Hér kúra ófáir einstaklingar í embættum sínum undir verndarvængjum pólitískra fylgjenda sinna, og sitja þar sem fastast sama
hversu vanhæfir þeir gera sig seka um.
Hundsaðar eru raddir ótal, ótal einstaklinga sem hafa ógrynni af
upplýsingum um vanhæfni og ómannúðleg vinnubrögð af hendi „ákveðins embættismanns.“ Af hverju er þessum manni ekki vikið
úr starfi og gerð ítarleg rannsókn á hegðun hans og vinnubrögðum í gegnum tíðina? Ef menn myndu leggjast yfir
aðferðarfræðina sem þessi embættismaður notar til að loka meðferðarheimilum eða knésetja forstöðumenn, þá sæju
menn það ljósara en hábjartan daginn hvað væri að gerast beint fyrir framan nefið á þeim. Og allt saman er þetta gert með blessun
valdamanna á Íslandi.
Af hverju er ekki hlustað á það sem liggur í augum uppi þegar
staðreyndir eru skoðaðar? Er það kannski af því að sannleikurinn sem liggur undir steininum er óþægilegur? Hvenær ætla menn og
konur að fara sýna dug og hugrekki til að takast á við þessi mál og horfast í augu við staðreyndir? Erum við virkilega orðin
það langt leidd í feminismanum, að konur eigi að komast upp með allt eingöngu af því þær eru konur?
Hvað á að rústa mörgum mannslífum í viðbót þar
til eitthvað verður gert? Hver verður næstur? Þú? Sonur þinn? Maðurinn þinn?
Ágústa Ágústsdóttir Garði 2, Kelduhverfi.