27. apr
Húsavíkurmótið í handboltaÍþróttir - - Lestrar 510
Hið árlega Húsavíkurmót í handbolta fór fram um helgina í íþróttahöllinni og lauk því undir kvöld í gær.
Að þessu sinni voru 29 lið skráð til leiks frá 16 félögum og voru keppendur liðlega 200 í sex deildum. Mótið var jafnframt liður í Íslandsmóti 6. flokks kvenna í handbolta.
Íslandsmeistarar í aldursflokknum urðu pæjur í liði ÍBV 1, Afturelding 1 lenti í öðru sæti og Breiðholtsmeyjar í lið ÍR 1 urðu í þriðja sæti til Íslandsmótsins.
Úrslit Húsavíkurmótsins má nálgast hér
volsungur.is