Húsavík - Julie Lænkholm sýnir í Safnahúsinu

„Húsavík“ er yfirskriftin á einkasýningu Julie Lænkholm sem opnar á Safnahúsinu á Húsavík þann 13. ágúst og stendur til til 15. október.

Húsavík - Julie Lænkholm sýnir í Safnahúsinu
Fréttatilkynning - - Lestrar 518

„Húsavík“ er yfirskriftin á einkasýningu Julie Lænkholm sem opnar á Safnahúsinu á Húsavík þann 13. ágúst og stendur til til 15. október.

Julie Lænkholm er langa-langafabarn Þórðar Guðjohnsen sem opnaði verslun á Húsavík árið 1871 og rak um langt skeið áður en hann fluttist til Danmerkur ásamt konu sinni og börnum og byggði sér þar hús sem fjölskyldan nefndi „Husavik“. Julie starfar sem listamaður og er búsett í Kaupmannahöfn.  Hún hefur þó að miklu leyti haldið til á Seyðisfirði síðan haustið 2015 og kennt við LungA-skólann þar.  Julie lauk grunnnámi í myndlist frá The Art Students League of New York og útskrifaðist með meistaragráðu frá Parsons the New School of New York árið 2015.  Hún vinnur aðallega með skúlptúra og hefur undanfarið sett upp sýningar sem tengjast ákveðnum stöðum í heiminum.  Hún hefur sýnt verk sín í ýmsum galleríum, svo sem The Kitchen í New York. Fyrstu einkasýningu sína hélt hún í Kaupmannahöfn í maí 2016.  Sýningin í Safnahúsinu á Húsavík er hins vegar sú fyrsta sem Julie heldur hér á landi.


Á sýningunni má sjá röð verka úr ull sem hefur verið þæfð og fest á gamlar dýnur.  Ullina hefur Julie litað með íslenskum jurtum sem hún hefur tínt í nágrenni Húsavíkur.  Ullarverkin eru byggð á ljósmyndum af íslensku landslagi en einnig á ljóðum eftir Julie og teikningum.  Innblásturinn í verkin sækir Julie jafnframt í ullarverk Friðriku Sigurgeirsdóttur. 

Sýningin opnar þann 13. ágúst með röð viðburða sem hefjast kl. 10 á reitnum milli Samkomuhússins og Öskju.  Meðlimir í Kvenfélagi Húsavíkur, Leikfélagi Húsavíkur og Kirkjukór Húsavíkur annast flutning dagskrár ásamt hópi húsvískra barna.  Klukkan 15:30 verður gestum boðið að ganga yfir í Safnahúsið og njóta verkanna sem þar eru staðsett á efstu hæð. 

Gjörningurinn á Öskjureitnum byggir á röð viðburða sem Julie hélt í Safnahúsinu á fimmtudagskvöldum í júlímánuði.  Þar kenndu Kvenfélagskonur Julie meðal annars að búa til blóm úr pappír. Þá tækni nýtti Julie til að búa til blóm úr bréfum frá ömmu sinni og ömmusystur. Segja má að sýningin hafi í raun hafist með viðburðaröðinni í júlímánuði þar sem Julie bauð íbúum Húsavíkur og nágrennis að gerast hluti af sýningunni.

Sýning Julie er sprottin úr rannsókn hennar á skjölum sem tengjast fjölskyldu hennar.  Sum skjalanna eru geymd í Skjalasafni Þingeyinga en önnur eru í einkaeigu. Við rannsóknir sínar hefur Julie velt fyrir sér hinum kynjafræðilega þætti í fjölskyldusögu sinni þar sem mun meiri áhersla er lögð á líf og hlutverk karla en kvenna.  Í þessu sambandi hefur Julie kynnt sér skrif Kristínar Loftsdóttur prófessors í mannfræði við Háskóla Íslands um kynjafræði og síðnýlenduhyggju. Með sýningu sinni gerir Julie tilraun til þess að komast nær formæðrum sínum, m.a. með því að safna gömlum dönskum þjóðlögum sem sungin voru við ýmis tækifæri og ljóðum sem samin voru af ættmæðrum hennar. 

Dagskrá sýningaropnunar þann 13. ágúst:

 Öskjureitur

10:00-18:00        Húsvísk börn búa til „merkingarstafla“ (meaning pile). Öllum börnum er velkomið að taka þátt í þessu verkefni!

14:00                       Kirkjukór Húsavíkur syngur lag Péturs Guðjohnsen „Andvaken“ með nýjum texta eftir Julie Lænkholm.

14:30                       Kvenfélag Húsavíkur flytur lagið „Án titils 2016“.

14:00-15:00        Meðlimir í Leikfélagi Húsavíkur birtast einhvern tímann á þessu bili!

Safnahús

15:30                       Athöfn á efstu hæð Safnahússins.  Boðið verður upp á kaffi og súkkulaði.

 



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744