Hrund ráðin skólastjóri Öxarfjarðarskóla

Hrund Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Öxarfjarðarskóla og mun hún formlega hefja störf 1. ágúst.

Hrund ráðin skólastjóri Öxarfjarðarskóla
Almennt - - Lestrar 182

Hrund Ásgeirsdóttir.
Hrund Ásgeirsdóttir.

Hrund Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Öxarfjarðarskóla og mun hún formlega hefja störf 1. ágúst.

Hrund útskrifaðist með B.ed kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands árið 2005 og hefur undanfarin ár starfað sem skólastjóri Grunnskóla Raufarhafnar og síðar skólastjóri bæði Grunnskóla Raufarhafnar og Öxarfjarðarskóla meðfram störfum sínum sem bóndi á Hóli í Kelduhverfi.

Þá lauk Hrund diplómunámi í menntavísindum, Stjórnun og forysta í lærdómssamfélagi, frá Háskólanum á Akureyri 2018. (nordurthing.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744