Heimsókn frá Bandalagi íslenskra skáta

Í síðustu viku komu fulltrúar Bandalags íslenskra skáta í heimsókn í Norðurþing.

Heimsókn frá Bandalagi íslenskra skáta
Almennt - - Lestrar 124

Í síðustu viku komu fulltrúar Bandalags íslenskra skáta í heimsókn í Norðurþing.

Frá heimsóknini segir á heimasíðu Norðurþings en tilgangur hennar var að kynna nýjan starfsgrunn BÍS og viðra hugmyndir um uppbyggingu æskulýðsstarfs á Norðurlandi. 

Skátarnir eru alþjóðleg æskulýðshreyfing sem vinnur að valdeflingu ungmenna í þeim tilgangi að virkja þau til jákvæðra áhrifa í sínu samfélagi og til þátttöku í að bæta þann heim sem við búum í.

Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um skátahreyfinguna á Íslandi: https://skatarnir.is/

Ef einhver hér í Norðurþingi hefur áhuga á að endurvekja starfsemi skáta er viðkomandi bent á að hafa samband við Hörpu Ósk Valgeirsdóttur, skátahöfðingja, harpa@skatarnir.is

Þess má geta til gamans að á árum áður var mjög öflugt skátastarf hjá Skátafélaginu Víkingi á Húsavík en það fagnaði 60 ára afmæli sínu þann 12. mars árið 2000, sjá nánar hér: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/524581/

Aðsend mynd

Á meðfylgjandi mynd eru Hjálmar Bogi Hafliðason forseti sveitarstjórnar, Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður fjölskylduráðs og Jón Höskuldsson fræðslufulltrúi sem tóku á móti fulltrúum BÍS þeim Þórhalli aðstoðarskátahöfðingja, Guðrúnu verkefnastjóra og Hörpu Ósk Valgeirsdóttur skátahöfðingja.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744