Heimsókn frá Bandalagi íslenskra skátaAlmennt - - Lestrar 117
Í síðustu viku komu fulltrúar Bandalags íslenskra skáta í heimsókn í Norðurþing.
Frá heimsóknini segir á heimasíðu Norðurþings en tilgangur hennar var að kynna nýjan starfsgrunn BÍS og viðra hugmyndir um uppbyggingu æskulýðsstarfs á Norðurlandi.
Skátarnir eru alþjóðleg æskulýðshreyfing sem vinnur að valdeflingu ungmenna í þeim tilgangi að virkja þau til jákvæðra áhrifa í sínu samfélagi og til þátttöku í að bæta þann heim sem við búum í.
Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um skátahreyfinguna á Íslandi: https://skatarnir.is/
Ef einhver hér í Norðurþingi hefur áhuga á að endurvekja starfsemi skáta er viðkomandi bent á að hafa samband við Hörpu Ósk Valgeirsdóttur, skátahöfðingja, harpa@skatarnir.is
Þess má geta til gamans að á árum áður var mjög öflugt skátastarf hjá Skátafélaginu Víkingi á Húsavík en það fagnaði 60 ára afmæli sínu þann 12. mars árið 2000, sjá nánar hér: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/524581/
Á meðfylgjandi mynd eru Hjálmar Bogi Hafliðason forseti sveitarstjórnar, Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður fjölskylduráðs og Jón Höskuldsson fræðslufulltrúi sem tóku á móti fulltrúum BÍS þeim Þórhalli aðstoðarskátahöfðingja, Guðrúnu verkefnastjóra og Hörpu Ósk Valgeirsdóttur skátahöfðingja.