Heimir Guðjónsson þjálfari Íslandsmeistara FH í heimsókn

Heimir Guðjónsson þjálfari íslandsmeistara FH í Pepsi-deild karla heimsótti Völsung heim í gær.

Heimir Guðjónsson sótti Völsung heim.
Heimir Guðjónsson sótti Völsung heim.

Heimir Guðjónsson þjálfari íslandsmeistara FH í Pepsi-deild karla heimsótti Völsung heim í gær. 

Heimir hefur þjálfað karlalið FH með góðum árangri frá haustinu 2007 en á undan því á hann langan feril af baki í efstu deild á Íslandi sem leikmaður við góðan orðstír.

 

Á heimasíðu Völsungs segir að tilgangur heimsóknarinnar hafi verið að hitta afrekshóp sem er í samstarfi við FSH, ræða við þau og vera með æfingu.

Á æfingunni fór Heimir yfir helstu grunnatriði sem hann telur að knattspyrnumenn þurfi að hafa vald á til að ná langt í greininni. Að æfingu lokinni ræddi Heimir við hópinn og talaði til að mynda um hvað þyrfti til að ná langt í íþróttum.

Heimir notaði tækifærið og hitti þjálfara yngri flokka í knattspyrnu þar sem hann fór yfir starf yngri flokka FH.

Að lokum hitti hann 3. flokka karla og kvenna í knattspyrnu og ræddi við þau um mikilvægi liðsheildar.

Meðfylgjandi mynd er fengin af heimasíðu Völsungs en þar eru fleir myndir til aðskoða.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744