Heimamenn opna nýja byggingavöruverslun á Húsavík

Heimamenn ehf. munu opna nýja byggingavöruverslun á Húsavík í febrúar.

Heimamenn opna nýja byggingavöruverslun á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 318

Vallholtsvegur 8.
Vallholtsvegur 8.

Heimamenn ehf. munu opna nýja byggingavöruverslun á Húsavík í febrúar. 

Þar verða seldar allar helstu byggingavörur sem í boði eru, ásamt málningu, hreinlætis-tækjum og öðru sem tengist viðhaldi og nýbyggingum. 

Þegar er búið tryggja aðgang að mörgum þekktum vörumerkjum og fleiri eru væntanleg en nánari kynning á vöruúrvali verður send út þegar nær dregur opnun.

Verslunin verður staðsett að Vallholtsvegi 8 á Húsavík þar sem Byggingavörudeild KÞ, KÞ Smiðjan og Húsasmiðjan hafa verið með rekstur áður. 

Eigendur hins nýja félags Heimamanna ehf. eru eftirtalin fyrirtæki á Húsavík: Val ehf., Steinsteypir ehf., Vermir sf., Trésmiðjan Rein ehf. og Bæjarprýði ehf.  

Ljósmynd - Aðsend

Framkvæmdastjóri Heimamanna ehf. er Brynjar T. Baldursson. 

„Ég er gríðarlega spenntur og hlakka mikið til að taka á móti viðskiptavinum í nýju versluninni okkar“ Segir Brynjar í fréttatilkynningu sem kom frá Heimamönnum ehf. í morgun.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744