Hátíðarhöld stéttarfélaganna slegin af vegna Covid 19

Vegna samkomubanns heilbrigðisyfirvalda til 4. maí hafa stéttarfélögin í Þingeyjarýslum orðið að aflýsa hátíðarhöldum sem vera áttu í íþróttahöllinni á

Frá 1. maí hátíðinni 2018.
Frá 1. maí hátíðinni 2018.

Vegna samkomubanns heilbrigðisyfirvalda til 4. maí hafa stéttarfélögin í Þingeyjarýslum orðið að aflýsa hátíðarhöldum sem vera áttu í íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí.

ÍI tilkynningu segir að hátíðarhöldin hafi á hverjum tíma verið mjög fjölsótt en um 500 til 600 gestir hafa komið í höllina að meðaltali undanfarin ár. Fjöldinn hefur farið upp í um 900 manns þegar mest var.

"Að sjálfsögðu verða stéttarfélögin að hlíta ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um samkomubann. Að ári liðnu verður vonandi hægt að bjóða upp á magnaða dagskrá við flestra hæfi enda hafa hátíðarhöld stéttarfélaganna alltaf verið vel tekið af þingeyingum og gestum þeirra". Segir í tilkynningunni.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744