14. apr
Hátíðarhöld stéttarfélaganna slegin af vegna Covid 19Almennt - - Lestrar 294
Vegna samkomubanns heilbrigðisyfirvalda til 4. maí hafa stéttarfélögin í Þingeyjarýslum orðið að aflýsa hátíðarhöldum sem vera áttu í íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí.
ÍI tilkynningu segir að hátíðarhöldin hafi á hverjum tíma verið mjög fjölsótt en um 500 til 600 gestir hafa komið í höllina að meðaltali undanfarin ár. Fjöldinn hefur farið upp í um 900 manns þegar mest var.
"Að sjálfsögðu verða stéttarfélögin að hlíta ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um samkomubann. Að ári liðnu verður vonandi hægt að bjóða upp á magnaða dagskrá við flestra hæfi enda hafa hátíðarhöld stéttarfélaganna alltaf verið vel tekið af þingeyingum og gestum þeirra". Segir í tilkynningunni.





























































640.is á Facebook