Hættustig Almannavarna aflýst

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra á landinu hefur ákveðið að fara af hættustigi Almannavarna, sem sett var á vegna óveðurs á landinu.

Hættustig Almannavarna aflýst
Fréttatilkynning - - Lestrar 67

Unnið er að hreinsun gatna á Húsavík í dag.
Unnið er að hreinsun gatna á Húsavík í dag.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra á landinu hefur ákveðið að fara af hættustigi Almannavarna, sem sett var á vegna óveðurs á landinu. 

Hættustigi var lýst yfir á miðnætti í gærkvöldi þegar ljóst var að veðurspá Veðurstofu Íslands sýndi ofsaveður um allt land og mikil hætta var á foktjóni og ófærð.

Veðurspáin gekk eftir og kom fyrsta útkall til björgunarsveitanna um klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú í nótt.

Síðan hafa björgunarsveitir um land allt sinnt rúmlega 145 verkefnum. Veðrið gekk hratt yfir og greinilegt að almenningur fór eftir ábendingum Almannavarna og viðbragðsaðila að vera ekki á ferðinni.  


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744